Hafðu samband strax: 897 8775 775 2111 [email protected]

GASLAGNIR

Gaslagnir fyrir heimili, veitingastaði og fyrirtæki

Reynsla af gaslögnum fyrir heimili, stærri aðila, veitingastaði og framleiðslufyrirtæki með áherslu á faglega framkvæmd og vandaðan frágang.

Gaslykt? Lokaðu fyrir gaskútinn og loftaðu vel út. Hafðu samband ef þú verður var við leka eða getur ekki stöðvað hann.

Gaslausnir fyrir heimili og atvinnurekstur

Gaslagnaverkefni þurfa skýra áætlanagerð og rétt vinnubrögð. Við förum yfir notkun, núverandi kerfi, fyrirhugaðar breytingar og aðstæður áður en umfang er ákveðið.

Algeng verkefni

  • Gaslagnir fyrir heimili
  • Gaslagnir fyrir veitingaeldhús
  • Lagnir fyrir framleiðslu og atvinnuhúsnæði
  • Breytingar og viðbætur við núverandi kerfi
  • Þjónusta og yfirferð tengd gaslögnum
  • Samvinna við aðra fagaðila í stærri verkefnum

Verkefnafyrirspurn

Best er að senda upplýsingar um húsnæði, fyrirhugaða notkun, tæki og tímaramma. Þá getum við metið næstu skref og hvaða gögn þarf fyrir verkefnið.

ALGENGAR SPURNINGAR

Svör við því helsta

Fyrir hverja er gaslagnaþjónustan?

Við tökum að okkur allar gaslagnir, fyrir heimili jafnt sem veitingastaði, framleiðslufyrirtæki og aðra rekstraraðila.

Takið þið að ykkur breytingar á eldri gaslögnum?

Við metum hvert verkefni út frá núverandi kerfi, fyrirhuguðum breytingum og aðstæðum á staðnum.

Hvaða upplýsingar á ég að senda?

Sendið lýsingu á húsnæði og notkun, upplýsingar um tæki, myndir ef við á og áætlaðan tímaramma.

Ertu með gaslagnaverkefni?

Sendu okkur helstu upplýsingar og við förum yfir verkefnið með þér.

Senda fyrirspurnHringja núna
Spjall
Spjallið okkarPípuLeggjarinn

Sæl/l! Hvernig getum við aðstoðað? 💧

Auðvitað erum við ekki með netspjall – við erum pípulagningamenn, fyrst og fremst 😊

Við vinnum á gamla mátann: sendu okkur tölvupóst og við svörum eins fljótt og hægt er. Ef allt er á floti, hringdu frekar.

Hringja
897 8775
Hringja
775 2111
Tölvupóstur