Almenn skref við vatnsleka
- Skrúfið fyrir vatnið (sjá leiðbeiningar hér að neðan).
- Ef vatn nálgast rafmagnstæki eða tengla, slökkvið á rafmagni í viðkomandi hluta húss í rafmagnstöflu, aðeins ef það er hægt án þess að standa í vatni.
- Færið verðmæti, húsgögn og raftæki frá vatninu.
- Takið myndir af skemmdum til að nota gagnvart tryggingafélagi.
- Hafið samband við okkur og lýsið staðsetningu, umfangi og upptökum lekans.
Hvernig skrúfa ég fyrir vatnið?
- Einstakt tæki: Flest salerni, vaskar og þvottavélar eru með lokum á lögninni (oft undir tækinu eða á bak við það). Snúið réttsælis til að loka.
- Allt húsið: Aðalinntak neysluvatns er yfirleitt í grind eða inntaksrými, oft nálægt hitaveitugrind. Lokið fyrir kalda vatnið á inntakinu.
- Fjölbýli: Ef ekki næst að loka innan íbúðar, hafið samband við húsvörð eða formann húsfélags svo hægt sé að loka fyrir í sameign.
- Opnið svo lægsta krana hússins til að tæma þrýsting af lögnum.
Heitt vatn og ofnar
- Heitt vatn getur valdið brunasárum. Varist gufu og heitt vatn á gólfi.
- Lokið fyrir ofnakerfið eða heita vatnið á inntaksgrind ef lekinn kemur frá ofni eða hitalögn.
- Ef ekki er vitað hvar loka er, hringið í okkur og við leiðbeinum.
Stífla og flæði úr frárennsli
- Hættið að nota salerni, vaska og sturtur á meðan vandinn er til staðar.
- Ekki hella sterkum hreinsiefnum í niðurföll án ráðgjafar; þau geta skaðað lagnir og valdið slysi.
- Ef skolp flæðir upp, verjið ykkur með hönskum og forðist snertingu.
Frosið rör
- Lokið fyrir vatnið og opnið krana.
- Hitið varlega með volgu lofti. Aldrei nota opinn eld.
- Ef rör hefur sprungið, takið myndir og hafið samband.
Gaslykt
Ef þú finnur gaslykt: Lokið fyrir gaskútinn og loftið vel út. Ekki kveikja ljós eða nota raftæki, enga loga og ekki reykja. Opnið glugga, farið út og hringið í 112 úr öruggri fjarlægð.
Hvenær á að hafa samband?
Hafið samband ef þið verðið vör við leka eða getið ekki stöðvað hann, ef hluti húsnæðis er án vatns eða hita, ef frárennsli flæðir eða ef þið eruð ekki viss um næstu skref. Hæg stífla, smáleki sem hægt er að loka fyrir og skipti á blöndunartæki eru bókuð sem venjuleg þjónusta.